Flugi Icelandair til Boston (FI631) og New York (FI615)  síðdegis í dag hefur verið aflýst vegna óveðurs sem nú gengur yfir austurströnd Bandaríkjanna. Flugi frá borgunum hingað til lands hefur sömuleiðis verið frestað af sömu sökum.

Fram kemur í tilkynningu frá Icelandair að búist sé við því að samgöngur verði aftur komnar í gang síðdegis á morgun og að flug verði þá samkvæmt áætlun.