Fyrsta flug Icelandair frá Cleveland lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun eftir um sex klukkustunda langa ferð. Cleveland er ein fimm nýrra borga í Norður-Ameríku sem Icelandair bætir við leiðakerfi sitt nú í vor, en hinar eru Baltimore, Kansas City, Dallas og San Francisco. Alls flýgur Icelandair til 23 borga í Norður-Ameríku í ár.

Cleveland í Ohio stendur við eitt af stóru vötnunum svokölluðu í Bandaríkjunum, Lake Erie, og er þekkt iðnaðarborg með um 2,2 milljónir íbúa.

Borgin er einnig kunn fyrir kraftmikið lista- og íþróttalíf, en þar er meðal annars hið þekkta safn Rock and Roll Hall of Fame Museum. Körfuboltalið borgarinnar, Cavaliers, þekkja flestir áhugamenn um körfuknattleik, en með því leikur ein skærasta stjarna NBA, Lebron James.