Flugleiðir gerðu í dag samning við KB banka hf. um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins. Tilgangurinn með viðskiptavaktinni er að efla viðskipti með hlutabréf Flugleiða í Kauphöll Íslands hf. í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndum verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.

KB banki hf. skal setja fram daglega kaup- og sölutilboð í Kauphöll Íslands
hf., að lágmarki 500.000 að nafnvirði á gengi sem KB banki hf. ákveður í
hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en
1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 5%.

Hámarksfjárhæð viðskipta dag hvern sem KB banki hf. er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 30.000.000,- að markaðsvirði.