Sú tillaga verður lögð fyrir aðalfund Flugleiða hf., sem haldin verður 10.mars nk., að nafni félagsins verði breytt og frá og með 10.mars í FL Group hf.. Samþykktum félagsins verði breytt þessu til samræmis.
Þá mun stjórn félagsins gera það að tillögu sinni að greiddur verði 60% arður af nafnvirði hlutafjár, sem samsvarar 1.515 milljónum króna. Þetta er 44% af hagnaði félagsins eftir skatta 2004.