Flugmálastjórn segir ekki rétt að Wow air hafi yfirtekið flugrekstur Iceland Express eins og greint var frá í síðustu viku. Samkvæmt tilmælum Flugmálastjórnar á föstudag sem birt var í kjölfar yfirtöku Wow air á Iceland Express kemur fram að aðeins þeir sem reka loftför í atvinnuskyni geti kallað sig flugrekendur. Flugmálastjórn bendir á að þótt Iceland Express og WOW air hafi stuðlað að reglubundnum flutningi á fólki og vörum til og frá Íslandi og aukinni samkeppni þá hafi félögin þurft að fá flugrekenda frá Evrópska efnahagssvæðinu með tilskilin flugrekstrarleyfi til að annast flugið fyrir sig.

Vefsíðan Túristi hefur upp á síðkastið bent á þetta atriði, þ.e. að norska loftferðaeftirlitið hafi bannað nýju fyrirtæki þar í landi að kalla sig flugfélag þar sem það býður upp á áætlunarflug með leiguvélum líkt og Iceland Express og Wow air.

Á vefsíðu Túrista segir:

„Íslensk stjórnvöld eru hins vegar ekki til í að ganga jafn langt og þau norsku því í fyrrnefndri tilkynningu Flugmálastjórnar segir: „...hugtakið flugfélag ekki skilgreint í lögum um loftferðir né kemur fyrir í reglugerðum byggðum á þeim lögum. Hvaða aðili sem er getur því í raun nefnt starfsemi sína flugfélag og ferðaskipuleggjendurnir Iceland Express og WOW air hafa gert það"“.