10 flugmenn sem starfa hjá Landhelgisgæslunni hafa samþykkt nýjan kjarasamning, sem samninganefndir FÍA og ríkisins gerðu í síðasta mánuði. Næsta verkefni í samningagerð hjá FÍA er við Flugskólana, þ.e. Flugskóla Íslands, Geirfugl og Flugskóla Akureyrar. Fyrsti fundur með samninganefnd skólanna hefur þegar verið haldinn og er stefnt að þeim næsta síðar í þessum mánuði.