Flugmenn Lufthansa hafa boðað verkfallsaðgerðir næstkomandi föstudag. BBC News greinir frá þessu.

Samkvæmt upplýsingum frá Lufthansa mun verkfall flugmannanna þýða að 200 flugum verði aflýst á föstudaginn. Mun það hafa áhrif á ferðaáætlanir um 250 þúsund farþega.

Verkfallið mun standa í sex klukkustundir og hefjast kl. 15 á föstudag. Deilan snýst um starfslokakjör flugmannanna og áforma flugmennirnir að halda verkfallsaðgerðum sínum áfram þar til komið verði til móts við kröfur þeirra.