Icelandair Group hf., Icelandair ehf. og Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hafa undirritað kjarasamning sem gildir til 30. september 2017. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Icelandair Group.

Samningurinn fer nú í kynningu og atkvæðagreiðslu hjá FÍA. „Þessi nýi þriggja ára samningur við FÍA er, ef hann verður samþykktur, mikilvægt skref fyrir félagið. Með stöðugleika gefast tækifæri til áframhaldandi innri vaxtar,“ segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group.