Hjálmar Jónsson formaður Blaðamannafélags Íslands segir yfirlýsingu stéttarfélags flugmanna Wow air um hlunnindi, sporslur og heimildaöflun fjölmiðla vera fjarstæðukennda óra.

Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um segir í fréttatilkynningu Íslenska flugmannafélagsins, hvers félagsmenn eru starfsmenn Wow air, að umfjöllun fjölmiðla um félagið hafi verið óvægin, þó ekki séu færð fyrir því rök.

Segir Hjálmar í eigin yfirlýsingu það vera á ábyrgð blaðamanna að fjalla á gagnrýninn hátt um mikilvæg fyrirtæki í íslensku efnahagslífi, að ekki sé talað um flugfélög sem starfi á viðkvæmum neytendamarkaði. „Það er skuldbinding blaðamanna gagnvart íslenskum almenningi,“ segir Hjálmar.

„Ég hef skilning á því að starfsmenn WOW air hafi áhyggjur af störfum sínum, en að rekja einhvern hluta af rekstrarvanda fyrirtækisins til umfjöllunar blaðamanna er að fara í geitarhús að leita ullar. Þarf ekki annað en horfa til umfjöllunar blaðamanna um Icelandair og erfiðleika þess félags, samkeppnisaðila WOW,  til að sjá hversu fjarstæðukenndir órar eru á ferðinni í stjórn Íslenska flugmannafélagsins.“