Samgönguráðherra og formaður stjórnar Flugstoða ohf. hafa skrifað undir viljayfirlýsingu þar sem Flugstoðum er falinn undirbúningur að byggingu og rekstri samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri í Reykjavík samkvæmt gildandi skipulagi.

Í fréttabréfi Samtaka verslunar og þjónustu kemur fram að nánari tilhögun undirbúnings og framkvæmdarinnar verður ákveðin síðar.

Tilefni viljayfirlýsingarinnar eru áætlanir um byggingu samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýrinni sem muni þjóna flugi, Strætó bs., flugrútu og langferðabifreiðum, með tengingu við almenningssamgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins, eins og fram kemur í minnisblaði samgönguráðherra og borgarstjóra frá 11. febrúar 2005, skýrslu undirbúningshóps frá 24. febrúar 2005, greinargerð vinnuhóps samráðsnefndar um samgöngumiðstöð dags. 20. nóvember 2006 og gildandi samgönguáætlun.

Með samgöngmiðstöð við Reykjavíkurflugvöll er ætlunin að skapa viðunandi aðstöðu fyrir alla flugrekendur í innanlandsflugi og þjónusta við farþega bætt til muna bæði með nýju húsi og með góðri tengingu við almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu, rútuferðir, leigubíla og svo framvegis. Næstu skref lúti að því að ganga frá lóðamálum, leggja fram hugmyndir um stærð og nánari starfsemi miðstöðvarinnar og í framhaldi af því áætla fjármögnun og verktíma. Gert er ráð fyrir að verkið verði boðið út í einkaframkvæmd.

Í viljayfirlýsingunni kemur einnig fram að lagt sé til að norðaustur-suðvestur flugbrautin á Keflavíkurflugvelli verði tekin í notkun á ný. Um leið er Flugstoðum ohf. falið að leggja af samsvarandi braut á Reykjavíkurflugvelli.

Vonast er til að bjóða megi út verkið á næsta sumri og að byggingartíminn verði sem skemmstur.