Isavia telur greiðslu flugvélaleigunnar ALC vegna skuldar flugvélar sem hefur verið kyrrsett á Keflavíkurflug­velli frá gjaldþroti Wow air, hvorki fullnaðargreiðslu vegna skulda Wow air né fullnægjandi tryggingu. Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, greindi frá þessu í samtali við mbl.is.

„Staða málsins er óbreytt. Flugvélin er áfram kyrrsett vegna skulda Wow, sem nema rúmum tveimur milljörðum króna,“ sagði Guðjón í samtali við mbl.is.

Í síðustu viku úrskurðaði Héraðsdómur Reykjaness að Isavia væri heimilt að kyrrsetja vélina. Hins vegar væri einungis heimilt að kyrrsetja vélina vegna skulda sem tengdust vélinni sjálfri en ekki öllum skuldum Wow air við Isavia. Heildarskuld Wow air við Isavia nemur 2 milljörðum króna en skuld vélarinnar nam um 87 milljónum króna.

Guðjón sagði við mbl.is að forsendur í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness hafi verið misvísandi og af þeim sökum hafi Isavia kært úrskurðinn til Landsréttar. „Við teljum mikilvægt að fá niðurstöðu í málið á æðra dómstigi,“ sagði hann.