Flugverð heldur áfram að lækka milli tímabila en heildarlækkun í ágúst er um 20% miðað við síðasta mánuð. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun Dohop.

Verð til allra áfangastaða í könnuninni lækka að þessu sinni. Mest lækkun er á flugi til Óslóar, eða rúm 35%, og minnsta lækkunin er á flugi til New York, eða um 2% lækkun.

Flugleiðin til Óslóar er jafnframt sú ódýrasta og býður Icelandair upp á hagstæðasta verðið þangað. Meðalverð á flugleiðinni er 34.379 krónur en ódýrasta flugið er á 32.404 krónur.

Fram kemur í tilkynningunni frá Dohop að háannatími ferðalaga meðal Íslendinga sé að ljúka og útskýri það að vissu leyti lækkun flugverða. Mikil samkeppni hafi verið á flugi til Íslands þetta sumarið en alls fljúga tólf flugfélög á Keflavíkurflugvöll.

Hægt er að sjá verðsamanburð milli flugfélaga hér.