Dohop hefur tekið saman verð á flugi frá Íslandi næstu vikur og borið saman verð til áfangastaða þer sem samkeppni er á markaðnum. Niðurstaða samantektarinnar er að meðalverð á flugi til nær allra áfangastaða sem í boði eru í beinu flugi frá Keflavíkurflugvelli lækka. Meðallækkunin nemur 4,9 prósentum.

Flug til Lundúna lækkar að meðaltali um 26,3 prósent, en flug til Manchester lækkar hins vegar mest, eða um 28 prósent. Ræður lækkun á verði með Easyjet þar mestu.

Við vinnslu könnunarinnar skoðar Dohop þrjár dagsetningar hverju sinni. Sú fyrsta er eftir tvær vikur, önnur eftir fjórar vikur og þriðja eftir átta vikur. Í hverri viku eru allir sjö dagar skoðaðir með vikudvöl í huga og meðaltal hverrar viku er endanlegt verð fyrir það tímabil.

Nánari upplýsingar um niðurstöður könnunarinnar má nálgast hér .