Verkfall flugvirkja Icelandair mun hefjast klukkann 01.00 eftir miðnætti í kvöld.

Í tilkynningu frá Icelandair kemur fram að samningafundi lauk fyrir stuttu með því að samninganefnd Flugvirkjafélagsins hafnaði tillögu sáttasemjara til lausnar deilunni.

„Sú niðurstaða er Icelandair mikil vonbrigði,“ segir í tilkynningunni.   Ljóst er að ekki verður flogið samkvæmt áætlun í fyrramálið til eftirtalinna áfangastaða: FI318 Osló; FI306 Stokkhólmur; FI542 París; FI204 Kaupmannahöfn; FI436 Manchester/Glasgow og FI450 London.

„Farþegar eru hvattir til þess að fylgjast með fréttum og upplýsingum um komu og brottfarartíma á Keflavíkurflugvelli. Nýjar upplýsingar verða gefnar út klukkan 9.00 í fyrramálið, mánudagsmorgun,“ segir í tilkynningu Icelandair.