Félagar í Flugvirkjafélagi Íslands sem starfa hjá Icelandair ehf. hafa boðað til tímabundins verkfalls þann 16. júní næstkomandi og ótímabundins verkfalls þann 19 júní.

Verkföllin verða eins og greinir að neðan:

  • Frá kl. 06:00 þann 16. júní 2014 til 06:00 þann 17. júní 2014.
  • Ótímabundin frá kl. 06:00 þann 19. júní 2014.

Náist ekki samkomulag milli Icelandair og FVFÍ mun flugáætlun Icelandair raskast vegna aðgerðanna. Í tilkynningu til Kauphallar segir að óvíst sé hvaða áhrif þær muni hafa á afkomu Icelandair Group hf.