Samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu hafa eftirtaldir flutningar á sendiherrum verið ákveðnir nú í upphafi árs:

Hjálmar W. Hannesson fastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York tekur við sem sendiherra Íslands í Washington.

Albert Jónsson sendiherra í Washington tekur við sem aðalræðismaður í Þórshöfn.

Eiður Guðnason aðalræðismaður í Þórshöfn mun láta af störfum.

Gunnar Pálsson sendiherra í Nýju Delhí flyst til starfa sem fastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og mun Finnbogi Rútur Arnarson, sendifulltrúi, veita sendiráðinu forstöðu tímabundið.

Guðmundur Eiríksson sendiherra í Pretoríu tekur við starfi prótókollstjóra í utanríkisráðuneytinu í Reykjavík.

Helgi Ágústsson prótókollstjóri mun láta af störfum