Öll flutningastarfsemi Samskipa verður sameinuð undir nafni Samskipa í haust. Var þetta tilkynnt á blaðamannafundi í Rotterdam í Hollandi í dag. Samtímis tók Samskip við tveimur nýjum kaupskipum sem voru sérsmíðuð fyrir félagið til gámaflutninga í Evrópu.

Var þessum systurskipum gefin nöfnin Samskip Pioneer og Samskip Courier. Með þessum nafngiftum er verið að undirstrika enn frekar þá ákvörðun að starfsemi Samskipa erlendis, þar á meðal Geest North Sea Line, verði framvegis undir vörumerkinu SAMSKIP. Þá lagði Michael F. Hassing, annar tveggja forstjóra Samskipa, hornstein að nýjum höfuðstöðvum Samskipa á hafnarsvæðinu í Rotterdam að lokinni athöfn við móttöku nýju skipanna.

Eftir ítarlega úttekt stjórnenda var ákveðið að sameina alla flutningastarfsemi félagsins undir vörumerkinu Samskip. Á þeirri endurmörkun að vera lokið 1. september næstkomandi. Er þetta gert til að styrkja frekar ímynd félagsins á alþjóðavettvangi í kjölfar þeirrar umfangsmiklu uppbyggingar sem félagið hefur gengið í gegnum á undanförnum misserum.

Dótturfélögin Van Dieren, Maritime og Seawheel verða einnig sameinuð undir nafni Samskipa.