Ákveðið hefur verið að flytja hlutabréfaeign First Island Trustees (Guernsey) Limited fyrir hönd Liveras Family Trust (80.269.613 bréf) yfir til nýstofnaðs dótturfélags sem er 100% í eigu First Island Trustees (Guernsey) Limited fyrir
hönd Liveras Family Trust að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Hið nýstofnaða félag heitir Lauren & Alysia Investments (Luxembourg) S.A. Markaðsvirði hlutarins er 5,6 milljarðar króna.

Meðal rétthafa Liveras Family Trust er Dion Liveras stjórnarmaður í Bakkavör Group hf. Eftir yfirfærsluna mun skráður eigandi hlutabréfanna vera hið nýstofnaða dótturfélag í staðinn fyrir First Island Trustees (Guernsey)
Limited. Eftir yfirfærsluna mun eign aðila fjárhagslega tengdum Dion Liveras ekki breytast þar sem hið nýstofnaða félag er í eigu sömu aðila.