Flybe, stærsta svæðisbundna flugfélag Evrópu, hyggst fljúga milli Íslands og Bretlands allt árið. Þessi ákvörðun er tekin á grundvelli eftirspurnar eftir þjónustu félagsins í sumar.

Fyrsta flug félagsins frá Íslandi til Birmingham verður 29. júní og eftir það verður flogið þrisvar í viku (sunnudaga, þriðjudaga og föstudaga). Sumarið 2014 verður farið frá Keflavíkurflugvelli seint að kvöldi en frá og með október verður brottför um eftirmiðdaginn, eftir því sem fram kemur í tilkynningu.

„Það er okkur mikil ánægja að bjóða upp á  heilsársáætlun frá Íslandi til Birmingham, fargjöldin eru hagstæð og ferðirnar verða áreiðanlega vinsælar jafnt fyrir viðskipta- og skemmtiferðir.“ segir Paul Simmons, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Flybe og bætir við „Birmingham er næststærsta borg Bretlands og er afar vel staðsett, þaðan er þægilegt að komast til London, Skotlands og meginlands Evrópu.“

Flugvélar Flybe eru 88 sæta Embraer 175 flugvélar en farþegar njóta þæginda í rúmgóðum leðurklæddum sætum.