Flybus fagnar 40 ára afmæli á árinu en flugvallarrútan var sett á laggirnar árið 1979 af Kynnisferðum sem reka þessa þjónustu enn. Flybus hefur af tilefni afmælisins tekið í notkun 11 nýja fólksflutningabíla, 10 af gerðinni VDL og einn frá Mercedes-Benz. Greint er frá þessu í fréttatilkynninguna.

„Kynnisferðir - Reykjavík Excursions hófu rekstur Flybus-rútunnar fyrir 40 árum en Flybus hefur um árabil verið meginleið farþega á milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar. Áætlunarferðir Flybus eru í samræmi við allar komur og brottfarir en við leggjum áherslu á að veita þeim sem sækja Ísland heim bestu mögulegar tengingar við áfangastaði sína. Af tilefni afmælisins munum við bjóða 40% afslátt í Flybus í dag fimmtudag á vefsíðunni flugrutan.is,“ segir Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða í tilkynningunni. Björn bætir við að Kynnisferðir fögnuðu 50 ára afmæli á síðasta ári.

„Það er ánægjulegt að fá þessa nýju fólksflutningabíla í flota okkar. Nýju bílarnir eru sparneytnari og umhverfismildari en áður. Þeir eru með aukið pláss bæði fyrir farþega og farangur og með USB tengi við öll sæti auk ókeypis, þráðlausrar nettengingar. Bílarnir eru auk þess búnir nýjasta öryggisbúnaði frá framleiðendum og því öruggari í alla staði fyrir farþega og ökumann. Það er hluti af umhverfis- og öryggisstefnu fyrirtækisins. Við höfum yfir að ráða einum stærsta hópbifreiðaflota Íslands og erum með margar stærðir bifreiða sem sjá um að koma farþegum okkar á marga af fallegustu stöðum Íslands,“ segir Björn ennfremur.