Sænska lággjaldaflugfélagið FlyMe, sem er að mestu leyti í eigu eignarhaldsfélagsins Fons, hefur undirritað fjármögnunarsamning við Glitni.

Flugfélagið greindi frá þessu í dag en nánari upplýsingar hafa ekki fengist að svo stöddu.

Björn Olegaard, stjórnarformaður FlyMe, segir fyrirtækið hafa áhuga á að taka þátt í samþjöppun á evrópska flugmarkaðnum og hefur fyrirtækið útbúið lista með nöfnum á 4-6 félögum sem mögulegt væri að taka yfir.

Olegaard sagði að FlyMe mun vinna mest með norska og enska armi Glitnis í framtíðinni.

Fons, sem er stjórnað af Pálma Haraldssyni, á um 20% í FlyMe. Félagið hefur samþykkt að kaupa Lithuanian Airlines á næsta ári, en áreiðanleikakönnun hefur hins vegar ekki verið lokið.