Fjármálaeftirlitið hefur birt niðurstöðu athugunar á viðskiptaháttum Landsbankans hf. vegna sölu á hlut hans í Borgun hf.

Fjármálaeftirlitið segir að það verði að gera ríkar kröfur til fagmennsku og vandvirkni í vinnubrögðum þegar verið er að selja eignir í eigu viðskiptabanka sem er að stærstum hluta í eigu ríkisins.

„Í því felst m.a. að leggja sérstakt mat á orðsporsáhættu sem getur fylgt því að hafa söluferlið ekki opið og kanna hvort sérfræðiaðstoð þriðja aðila og/eða sjálfstæð áreiðanleikakönnun sé til þess fallin að veita bankanum aukinn aðgang að gögnum og upplýsingum um félagið í söluferlinu.“

FME segir að verklag bankans við sölu á eignarhlut hans í Borgun hafi verið áfátt og heilt á litið ekki hafa verið til þess fallið að skila bestri niðurstöðu fyrir bankann. Eftirlitið telur því að salan hafi ekki að öllu leyti samræmst eðlilegum og heilbrigðum viðskiptaháttum á fjármálamarkaði. Eftirlitið segir þó að þar sem bankinn hafi að eigin frumkvæði tilkynnt Fjármálaeftirlitinu að hann hafi í hyggju að grípa til aðgerða þá telur það að ekki sé tilefni til frekari aðgerða að svo stöddu. Eftirlitið óskar þó eftir því að vera upplýst um framgang endurskoðunar á verklagi eftir því sem við á.