Fjármálaeftirlitið (FME) hefur gefið út túlkun á tilkynningar- og birtingarskyldu laga um verðbréfaviðskipti, vegna veðkalla í fjármálagerningum.

Þetta kemur fram á vef FME þar sem túlkunin hefur einnig verið birt.

Þar kemur fram að tilefni túlkunarinnar er aukinn fjöldi veðkalla í fjármálagerningum í eigu innherja, stjórnenda eða aðila fjárhagslega tengdum þeim á sl. mánuðum, en borið hefur á því að útgefendur telji að ekki þurfi að sinna tilkynningar- og birtingarskyldu laga um verðbréfaviðskipti þegar um slík viðskipti er að ræða, þ.e. þvinguð viðskipti.

„Fjármálaeftirlitið vill því með túlkun sinni vekja sérstaka athygli á því að framangreind skylda hvílir á aðilum óháð því hver aðdragandi viðskiptanna er enda geta slíkar upplýsingar haft verðmótandi áhrif á viðkomandi fjármálagerninga útgefandans auk þess sem þær nýtast í eftirlitsskyni,“ segir á vef FME.

Gerir orðalag nefndra lagaákvæða ekki greinarmun á því hver aðdragandi viðskiptanna er, þ.e hvort um er að ræða þvinguð viðskipti að frumkvæði veðhafa eða viðskipti að frumkvæði innherja, stjórnanda eða aðila fjárhagslega tengdum þeim en hvergi er í lögunum að finna um undanþágu frá nefndum skyldum þessara aðila þegar um slík viðskipti er að ræða.“

Sjá nánar á vef FME.