Forstjórar Fjármálaeftirlitsins og Kauphallar Íslands hafa endurnýjað yfirlýsingu um eftirlitsverkefni sem Kauphöllin annast fyrir Fjármálaeftirlitið.

Þá hafa Kauphöllin og Fjármálaeftirlitið einnig endurnýjað samning um að Kauphöllin taki að sér að annast yfirlestur og staðfestingu lýsinga.

Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins í dag.

Þá kemur fram að samkvæmt yfirlýsingunni felur Fjármálaeftirlitið Kauphöllinni eftirlitsverkefni sem í megindráttum beinast að upplýsingaskyldu útgefanda, flöggunarskyldu, tilboðsskyldu, tilkynningarskyldu um viðskipti innherja, innherjasvikum og markaðsmisnotkun.

Telji Kauphöllin að lög á verðbréfamarkaði kunni að hafa verið brotin vísar hún málum áfram til Fjármálaeftirlitsins. Lögbundið eftirlitshlutverk með framangreindum þáttum hvílir eftir sem áður á Fjármálaeftirlitinu.

Þá kemur fram að samningur Kauphallarinnar og Fjármálaeftirlitsins um að Kauphöllin taki að sér að annast yfirlestur og staðfestingu lýsinga vegna verðbréfa sem taka á til viðskipta í Kauphöllinni sem og annarra lýsinga sem gefnar eru út af skráðum félögum í Kauphöll, hvort sem þau skulu tekin til viðskipta í Kauphöllinni eða ekki, felur í sér að Kauphöllin skal tryggja að form og efnisinnihald lýsinga sé í samræmi við ákvæði laga um verðbréfaviðskipti og reglna sem settar eru samkvæmt þeim.

Kauphöllin skuldbindur sig til að ráða yfir starfsfólki sem hefur færni, þekkingu og sérfræðikunnáttu sem nauðsynleg er til að sinna yfirlestri og staðfestingu lýsinga með fullnægjandi hætti og innan þeirra tímamarka sem tilgreind eru í reglum sem settar eru á grundvelli laga um verðbréfaviðskipti.