Fjármálaeftirlitið segir að fjárfestingar Sjóðs 9 hjá Glitnis sjóðum hafi verið í samræmi við reglur sjóðsins og ákvæði laga um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FME.

Tilkynningin er svohljóðandi. "Að gefnu tilefni vill Fjármálaeftirlitið koma því á framfæri að fjárfestingar Sjóðs 9 hjá Glitni sjóðum hf. hafa verið í samræmi við reglur sjóðsins og ákvæði laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.

Fjármálaeftirlitið fylgist reglulega með því að fjárfestingar verðbréfa- og fjárfestingarsjóða séu í samræmi við reglur sjóðanna og ákvæði fyrrnefndra laga.  Í lok árs 2007 var gerð sérstök úttekt á Sjóði 9 hjá Glitni og var niðurstaða hennar að fjárfestingar og starfsemi hans  var í samræmi við lög og reglur."