Í fréttatilkynningu frá Fjármálaeftirlitinu segir að í ljósi dóms Hæstaréttar frá 15. febrúar 2012 í máli sem varðaði endurútreikning á gengistryggðu láni vilji FME koma eftirfarandi á framfæri:

„Ljóst er að niðurstaða dómsins mun hafa neikvæð áhrif innan kerfisins, en þó ekki að því marki að það ógni fjármálastöðugleika. Áhrifin gætu orðið mismikil eftir fjármálafyrirtækjum og í sumum tilvikum gætu þau jafnvel verið óveruleg. Því er á þessari stundu ekki ljóst hver áhrif dómsins verða að lokum. Þá er eiginfjárstaða viðskiptabankanna langt umfram þær kröfur sem Fjármálaeftirlitið gerir,“ segir í tilkynningunni.

Fjármálaeftirlitið muni strax hefja vinnu við mat á áhrifum dómsins á fjárhagsstöðu einstakra fjármálafyrirtækja. Mikilvægt sé að eyða allri óvissu um fordæmisgildi dómsins og áhrif hans á endurútreikning gengistryggðra lána.