FL Group hefur frá og með deginum í dag fengið formlega heimild Fjármálaeftirlitsins til að eiga og fara með virkan eignarhlut í Glitni samanber lög um fjármálafyrirtæki, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. FL Group á nú 30,4% hlut í Glitni og er stærsti hluthafi bankans.

Stærstu hluthafar FL Group eru: Oddaflug (19,8%), í eigu Hannesar Smárasonar, forstjóra; Baugur Group (18,2%); Gnúpur fjárfestingafélag (17,2%), FL Group (7,0%) Icon (5,6%) og Materia Invest (5,1%). Í sumum tilfellum eru hlutirnir skráðir á nafn íslenskra fjármálafyrirtækja vegna framvirkra samninga.