Samkvæmt upplýsingum sem Fjármálaeftirlitið hefur aflað frá viðskiptabönkunum er samtala brúttó krafna þeirra á Lehman Brothers og tengda aðila samtals 182,6 milljónir evra eða sem samsvarar 1,8% af heildareiginfjárgrunni bankanna.

Um er að ræða nánast eingöngu skuldabréfakröfur eða ígildi þeirra (senior debt) en ekki áhættu í formi hlutabréfa eða víkjandi krafna.

Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins (FME) en vegna frétta af gjaldþroti bandaríska fjárfestingarbankans Lehman Brothers og mögulegra áhrifa á fjármálakerfi víða um heim, þ.m.t. á Íslandi hefur Fjármálaeftirlitið sent frá sér tilkynningu.

Þá vekur FME athygli á því að kröfurnar eru að nokkru leyti á félög sem ekki eru í greiðslustöðvun en tengjast Lehman Brothers. FME segir að vænta megi þess að hluti framangreindra krafna innheimtist.

„Með hliðsjón af lágu hlutfalli af eiginfjárgrunni teljast þessar áhættur ekki áhyggjuefni fyrir fjármálakerfið á Íslandi. Íslenskir bankar hafa ekki sérstöðu í þessu sambandi þar sem flestir stærri erlendir bankar hafa upplýst um kröfur á Lehman Brother,“ segir á vef FME.