Ný lög um innheimtuaðgerðir tóku gildi 1. janúar sl.  Með lögunum er Fjármálaeftirlitinu falið að veita innheimtuleyfi til aðila sem stunda innheimtu gjaldfallinna peningakrafna fyrir aðra og aðila sem kaupa peningakröfur í þeim tilgangi að innheimta þær sjálfir í atvinnuskyni.

Lögmenn, opinberir aðilar, viðskiptabankar og sparisjóðir, aðrar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki mega þó stunda innheimtu án innheimtuleyfis.  Fjármálaeftirlitið tekur nú við umsóknum um innheimtuleyfi og hafa fyrstu leyfin þegar verið veitt segir í frétt á heimasíðu eftirlitsins.

Þar kemur einnig fram að með innheimtulögunum er Fjármálaeftirlitinu að auki falið að hafa eftirlit með því að innheimtustarfsemi aðila með innheimtuleyfi, opinberra aðila, viðskiptabanka, sparisjóða, annarra lánastofnana og verðbréfafyrirtækja sé í samræmi við innheimtulög og þær reglur sem settar eru á grundvelli laganna.  Fjármálaeftirlitið hefur á grundvelli heimildar í innheimtulögunum sett reglur um framkvæmd eftirlits með innheimtustarfsemi skv. innheimtulögum nr. 95/2008.

Í reglunum er kveðið á um hvernig eftirliti Fjármálaeftirlitsins verði háttað og eru þar ákvæði m.a. um skrá yfir innheimtuaðila og regluleg skýrsluskil þeirra.  Viðskiptaráðherra er jafnframt veitt heimild í innheimtulögunum til að setja reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar.