Fjármálaeftirlitið (FME) hefur vísað 65 málum til embættis sérstaks saksóknara frá byrjun árs 2009. Á sama tíma hefur 14 málum verið vísað til efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra og 6 til Ríkissaksóknara. Þá hefur stjórnvaldssektum verið beitt í 11 skipti og févíti eða dagsektum einu sinni. 58 sáttir verið gerðar og 12 sinnum hafa verið gerðar einhverjar athugasemdir. Viðurlagamál hjá stofnuninni eru því orðin 167 frá byrjun árs 2009.

Stórefldu rannsóknarhópinn

Í frétt um málið á síðu FME segir að „Fjármálaeftirlitið stórefldi á síðasta ári rannsóknarhóp sinn sem sinnir athugunum á mögulegum brotum í tengslum við bankahrunið og bætti níu starfsmönnum við hann, flestum á síðari hluta ársins. Hópurinn vinnur í nánu samstarfi við embætti sérstaks saksóknara. Ein ástæða þess að ráðist var í þessa stækkun var fjölgun starfsmanna embættis sérstaks saksóknara. Mikilvægt var að stækka rannsóknarhóp Fjármálaeftirlitsins svo stofnunin gæti lokið rannsókn mála tímanlega.

Skýrt hefur verið frá því opinberlega að stefnt sé að því að öllum málum verði lokið hjá embætti sérstaks saksóknara fyrir árslok 2014. Því er mikilvægt að Fjármálaeftirlitið hafi afl til að ljúka sínum þætti rannsóknanna nokkuð hratt.“

Viðurlagamál
Viðurlagamál
© vb.is (vb.is)