Fjármálaeftirlitið samþykkti þann 30. mars 2012 samruna Íslandsbanka hf. og Kreditkorts hf. á grundvelli 1. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Íslandsbanki hf. tekur við öllum réttindum og skyldum Kreditkorts hf. og verða félögin sameinuð undir nafni Íslandsbanka hf.

Kemur þetta fram á vef FME. Sérhæft kortaútibú undir vörumerkinu Kreditkort mun verða rekið að Ármúla 28 og mun það veita viðskiptavinum sínum sömu þjónustu og áður.