Fjármálaeftirlitið hefur heimilað yfirfærslu tiltekins rekstrarhluta GAMMA til Júpíters rekstrarfélags. Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins .

„Þann 24. júlí 2019 samþykkti Fjármálaeftirlitið yfirfærslu tiltekins rekstrarhluta GAMMA Capital Management hf, til Júpíters rekstrarfélags, sbr. 1. mgr. 106. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Um er að ræða rekstur GAMMA: Iceland Fixed Income Fund og GAMMA: Credit Opportunity Fund," segir á vef stofnunarinnar.

„Yfirfærslan vegna GAMMA: Credit Opportunity Fund átti sér stað þann 1. júlí sl. og mun yfirfærsla vegna GAMMA: Iceland Fixed Income Fund eiga sér stað þann 1. ágúst nk."