Á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins (FME) kemur fram að stofnunin hefur á undanförnum dögum staðið fyrir fræðslufundum um markaðsmisnotkun fyrir starfsfólk stærstu fjármálafyrirtækjanna.

„Í ljósi þeirra miklu hreyfinga sem verið hafa á fjármálamörkuðum undanfarnar vikur sem og umfjöllunar þeim tengdum, jafnt í innlendum sem erlendum fjölmiðlum, taldi Fjármálaeftirlitið tilefni til að standa fyrir slíkri fræðslu.  Hefur fræðslunni einkum verið beint að starfsfólki fjármálafyrirtækja sem starfar við verðbréfaviðskipti,“ segir á vef FME.

Megininntak fræðslunnar er hvað átt sé við með hugtakinu markaðsmisnotkun, í skilningi 117. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/20007, og hvernig bregðast skuli við slíku.

Þá kemur fram að fundirnir hafi verið afar vel sóttir en um 300 manns hafa sótt fundina.