Starfsmannafélag Fjármálaeftirlitsins (FME) hefur haft frumkvæði að skipulagningu náms- og árshátíðarferðar til Írlands í apríl að því er fram kemur á vef FME. Ferðin stendur frá 23. til 26. apríl og mun „ekki trufla daglega starfsemi eftirlitsins". Fram kemur að tæplega helmingur starfsmanna FME hafi ákveðið að taka þátt í ferðinni.

„Náms- og fræðsludagskrá ferðarinnar, sem verður á föstudeginum, er unnin í samvinnu við írska Fjármálaeftirlitið sem er hluti af Írska Seðlabankanum," segir á vef FME. „Samstarf þess og Fjármálaeftirlitsins hefur verið náið og gott á undanförnum árum. Dagskráin er skipulögð þannig að starfsmenn Fjármálaeftirlitsins taka þátt í fjölþættri fræðslu þar sem lögð verður áhersla á áhættumiðað eftirlit.

Starfsmenn Fjármálaeftirlitsins greiða eigin ferða- og gistikostnað að öllu leyti.  Fjármálaeftirlitið styrkir starfsmannafélagið ekki sérstaklega vegna ferðarinnar. Sameiginlegur árshátíðarkvöldverður verður í boði starfsmannafélagsins á laugardagskvöldinu."