Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um nýlega þá hefur Fjármálaeftirlitið haft til skoðunar nú í nokkurn tíma hvort BLM Investment ehf. sé hæft til að fara með aukinn virkan eignarhlut í Lýsingu hf.

Sá stofnunin ástæðu til að koma með athugasemd við fréttaflutning af málinu sem hún segir byggja á misskilningi á tímafresti á afgreiðslu tilkynninga um virka eignarhluti.

„Fjármálaeftirlitið hefur hinn 27. janúar komist að þeirri niðurstöðu að BLM Investment ehf., kt. 460813-1820, sé hæft til að fara með aukinn virkan eignarhlut með óbeinni hlutdeild í Lýsingu hf. sem nemur allt að 100%, sbr. VI. kafla laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, í gegnum eignarhald sitt í móðurfélagi Lýsingar hf, Klakka ehf," segir í frétt FME .

„Auk þess hefur Fjármálaeftirlitið komist að þeirri niðurstöðu að móðurfélag BLM Investment ehf., Burlington Loan Management DAC. auk tengdra aðila, Deutsche International Finance (Ireland) Limited, Walkers Global Shareholding Services Limited og Davidson Kempner Capital Management LP, séu hæf til að fara með allt að 100% virkan eignarhlut með óbeinni hlutdeild í Lýsingu hf.“