Fjármálaeftirlitið (FME) og Tryggingareftirlitið í Færeyjum hafa undirritað samstarfssamning (Memorandum of Understanding) í tengslum við Hoyvíkur samkomulagið milli Íslands og Færeyja er undirritað var 1. ágúst 2005, sbr. lög um breytingu á ýmsum lögum vegna samnings milli ríkisstjórnar Íslands annars vegar og ríkisstjórnar Danmerkur og heimastjórnar Færeyja hins vegar.

Þetta kemur fram á vef FME.

Þar kemur fram að samstarfssamningurinn staðfestir ramma um samvinnu eftirlitanna vegna starfsemi íslenskra vátryggingafélaga í Færeyjum og færeyskra vátryggingafélaga á Íslandi.

Einnig staðfestir samningurinn ramma um eftirlit með viðkomandi félögum og upplýsingaskipti með trúnaðarupplýsingar.

Samstarfssamningurinn tók gildi frá og með 1. september 2008