Fjármálaeftirlitið hefur tilkynnt Kviku banka hf. að það hefði metið Kviku hæfan til að fara með yfir 50% eignarhlut í GAMMA Capital Management hf. (GAMMA), sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Greint er frá þessu í tilkynningu Kviku til kauphallar.

Hluthafafundur Kviku, haldinn þann 18. desember 2018, hafði áður samþykkt kaup Kviku á öllu hlutafé í GAMMA, með þeim skilmálum sem fram koma í tilkynningu Kviku um kaupsamning um hlutaféð, sem birt var 19. nóvember 2018 í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Kaupin eru enn háð fyrirvörum um samþykki Samkeppniseftirlitsins og breska Fjármálaeftirlitsins.