Inn í kerfi Kauphallarinnar hefur borist tilkynning um að Milestone ehf. hafi borist bréf frá Fjármálaeftirlitinu þess efnis að Fjármálaeftirlitið samþykki umsókn Milestone ehf. um kaup á virkum eignarhlut í Íslandsbanka hf. Milestone ehf. er eigandi, ásamt tengdum aðilum, að 12,726% af heildarhlutafé í Íslandsbanka sbr. tilkynningar um flöggun 15. apríl sl. og 1. september sl. og tilkynningu um innherjaviðskipti frá 13. október sl.

Milestone ehf. er í eigu Karls Wernerssonar, Ingunnar Wernersdóttur og Steingríms Wernerssonar. Karl Wernersson er í bankaráði Íslandsbanka hf. og fruminnherji.