Bankastjórar nýju bankanna þriggja hafa farið í gegnum mat á hæfi og hafa þeir nú fengið tilkynningu um að þeir hafi staðist matið.

Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins (FME) en samkvæmt henni hefur FME það hlutverk samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki að meta hæfi bankastjóra fjármálafyrirtækja.

„Í lögum um fjármálafyrirtæki er kveðið á um að bankastjórar skuli hafa viðeigandi þekkingu og starfsreynslu og að hún sé með þeim hætti að tryggt sé talið að þeir geti gegnt stöðu sinni á viðhlítandi hátt,“ segir á vef FME.

Þá kemur fram að FME hóf framkvæmd svonefnds hæfismats bankastjóra fjármálafyrirtækja árið 2005.

Matið fer þannig fram að eftir að tilkynnt er um nýjan bankastjóra, eða áður en nýtt starfsleyfi er veitt er viðkomandi boðaður í hæfismat hjá eftirlitinu. Þar er m.a. farið yfir tiltekin ákvæði laga og reglna sem taka á ýmsum þáttum starfseminnar sem viðkomandi ber ábyrgð á.

„Fjármálaeftirlitið leggur áherslu á að þeir starfsmenn sem sinna stjórnunarstöðum og hafa umsjón með daglegri starfsemi fjármálafyrirtækis búi yfir nægilegri þekkingu og starfsreynslu til að gegna stöðu sinni á tilhlýðilegan hátt,“ segir jafnframt á vef FME.

„Í tengslum við mat á hæfi bankastjóranna þriggja hefur Fjármálaeftirlitið beint til þeirra tilmælum um  að taka upp sambærilegt mat á hæfi annarra stjórnenda í því fyrirtæki sem þeir stýra.“