Fjármálaeftirlitið hefur yfirfarið fyrirliggjandi gögn og upplýsingar og hefur ákveðið að samþykkja áframhaldandi starfsleyfi MP Banka hf. sem viðskiptabanki og þar með til móttöku innlána.

Þetta kemur fram í tilkynningu MP Banka til Kauphallarinnar.

Fjármálaeftirlitið veitti MP Banka hf. viðskiptabankaleyfi þann 10. október sl. og var í fyrstu veitt til 31. desember 2008.

Fjármálaeftirlitið hefur átt í frekari samskiptum við MP Banka eftir veitingu starfsleyfisins og kallaði meðal annars kallað eftir nýjum fjárhagsupplýsingum og upplýsingum tengdri þeirri viðbótarstarfsemi sem felst í móttöku innlána.