Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að stöðva tímabundið viðskipti með alla fjármálagerninga sem gefnir eru út af Exista, Glitni, Kaupþingi, Landsbankanum, Straumi-Burðarási og Spron sem teknir hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði.

Í tilkynningu frá Fjármálaeftirlitinu (FME) kemur fram að það er mat FME að aðstæður umræddra útgefanda séu þannig að viðskiptin mundu skaða hagsmuni fjárfesta, enda ríkir umtalsverð óvissa sem kemur í veg fyrir eðlilega verðmyndun verðbréfanna.

Þá er það mat Fjármálaeftirlitsins að jafnræði fjárfesta verði ekki tryggt með öðrum hætti, þar sem verðmótandi upplýsingar séu of dreifðar til að unnt sé að tryggja trúnað þeirra.