Þegar arðgreiðslur eru bornar saman við hagnað er rétt að hafa í huga að ákvörðun um arðgreiðslur er tekin á aðalfundum vátryggingafélaga og er þá miðað við afkomu ársins á undan.

Þannig voru til dæmis arðgreiðslur vegna ársins 2006 ákveðnar á aðalfundum félaganna í ársbyrjun 2007 þegar árið 2006 var gert upp.

Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins (FME) í dag en vegna fréttaflutnings í fjölmiðlum síðastliðna helgi um arðgreiðslur vátryggingafélaga og hlutfall þeirra af hagnaði, telur FME rétt að birta upplýsingar um hagnað og arðgreiðslur þriggja stærstu vátryggingafélaganna vegna áranna 2006-2008.

Þá kemur einnig fram að samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi er heimilt að greiða yfirfærðan hagnað frá fyrri árum, enda sé ljóst að félagið uppfylli kröfur um tilskilið lágmarksgjaldþol, þess hafi verið gætt að leggja til hliðar nægilegt fé fyrir vátryggingaskuld félagsins, svo og að settum reglum um mat á eignum félagsins og fyrningu þeirra hafi verið fylgt.

Á vef FME kemur fram að öll félögin þrjú greiddu arð vegna ársins 2006 og að meðaltali námu arðgreiðslurnar 55% af hagnaði. Einungis eitt af félögunum greiddi arð vegna ársins 2007 og enginn arður var greiddur vegna ársins 2008.

Sjá nánar vef FME.