Samkvæmt lögum hefur stofnast til greiðsluskyldu Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta gagnvart viðskiptavinum Glitnis banka hf. sem ekki hafa fengið greiddar innstæður heildsöluinnlána.

Þetta kemur fram á vef Fjármálaeftirlitsins (FME).

Þann 31. október 2008 fékk FME staðfestingu á því að Glitnir banki hf. hafi ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði tiltekinna heildsöluinnlána í Bretlandi þann 3. október 2008.

Þá kemur fram að það er álit FME að sama dag hafi Glitnir ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæðna tiltekinna reikninga, þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust.