Fjármálaeftirlitið ( FME ) varar fjárfesta við töku lána til hlutabréfakaupa og segir áhættu fylgja slíkum viðskiptum. FME bendir á að skuldsett hlutabréfakaup geta aukið sveiflur í ávöxtun hlutabréfa og geti fjárfestingin á endanum reynst þeim dýr sem ekki hafi efni á að tapa fé.

Í Morgunblaðinu í fyrradag sagði að ásókn fjárfesta hafi aukist með auknum fjölda nýskráninga á hlutabréfamarkað.

FME segir á vefsíðu sinni:

„Í kjölfar fréttar um vaxandi ásókn fjárfesta í skuldsett hlutabréfakaup sem birtist í Morgunblaðinu þann 16. apríl vill Fjármálaeftirlitið vekja sérstaka athygli almennra fjárfesta á þeirri áhættu sem fylgir slíkum viðskiptum. Skuldsett hlutabréfakaup þar sem fjárfestir leggur einungis fram hluta kaupverðsins eru í eðli sínu mjög áhættusöm og til þess fallin að auka sveiflur í ávöxtun, hvort sem er til hagnaðar eða taps. Fjárfestingin getur á endanum kostað fjárfesta fjármuni sem þeir hafa ekki efni á að tapa.“

FME heldur áfram:

„Ennfremur vill Fjármálaeftirlitið benda á að fjármagnshöft og það fjárfestingarumhverfi sem nú ríkir á Íslandi veitir enga vissu um jákvæða ávöxtun hlutabréfa. Öllum fjárfestingum, þar með talið fjárfestingum í hlutabréfum, fylgir áhætta og fjárfestar eiga ávallt á hættu að tapa fjármunum sínum að hluta til eða að fullu.“