Fjármálaeftirlitið (FME) hefur veitt Arctica Finance hf. í Kópavogi starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki, samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki.
Á vef FME kemur fram að Starfsleyfi Arctica Finance tekur til viðskipta og þjónustu með fjármálagerninga samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti sem felst í móttöku og miðlun fyrirmæla frá viðskiptavinum um einn eða fleiri fjármálagerninga, framkvæmd fyrirmæla fyrir hönd viðskiptavina, eignastýringu og fjárfestingarráðgjöf.
Þá kemur fram að Arctica Finance hf. hyggst að auki stunda starfsemi á grundvelli a., b., d. og e. liðar 1. tl. og a. og c. liðar 2. tl. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki.
Fjármálaeftirlitið hefur samhliða veitingu starfsleyfis til handa Arctica Finance veitt Arctica Eignarhaldsfélagi ehf. heimild til að eiga og fara með yfir 50% eignarhlut í fyrirtækinu.