Fjármálaeftirlitið (FME) hefur ákveðið að Íslandsbanka skuli veitt skilyrt undanþága frá tilboðsskyldu vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem bankinn er í sem kröfuhafi gagnvart stórum hluthöfum Icelandair Group.

Þetta kemur fram á vef FME en stofnunin hefur verið með til athugunar skipan mála í eignarhaldi Icelandair Group hf., með hliðsjón af yfirtökureglum laga um verðbréfaviðskipti.

„Athugunin leiddi í ljós að Íslandsbanki hf. hefði óbein yfirráð í Icelandair Group hf., vegna stöðu sinnar sem lánardrottinn stórra hluthafa félagsins, sem ekki standa við skuldbindingar sínar samkvæmt lánasamningum, og að Íslandsbanka hf. bæri því skylda til að gera öðrum hluthöfum félagsins yfirtökutilboð,“ segir á vef FME.

„Að mati Fjármálaeftirlitsins uppfyllir bankinn þau skilyrði sem gera verður til að veðhafa sé veitt slík undanþága.“