Fjármálaeftirlitið hefur fallist á ósk Milestone ehf. um heimild til að fara með allt að 25% eignarhlut í Glitni í samræmi við reglur um virka eignarhluti í fjármálafyrirtækjum, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Milestone og skyld félög fara nú með 20,75% eignarhlut í bankanum.