Fjármálaeftirlitið hefur sett reglur um upplýsingaskyldu vegna launa og þóknana til stjórnarmanna og framkvæmdastjóra í lífeyrissjóðum vegna starfa í þágu sjóðsins og skulu upplýsingarnar sérgreindar á hvern og einn. Reglurnar öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda við gerð ársreikings fyrir árið 2004.

Í skýringum með ársreikningi skal tilgreina heildarfjárhæð launa og þóknana til stjórnar og framkvæmdastjóra lífeyrissjóðs vegna starfa í þágu sjóðsins, enda séu þessar upplýsingar ekki í skýrslu stjórnar. Upplýsingarnar skulu sérgreindar á einstaka stjórnarmenn og framkvæmdastjóra eins og segir í frétt á heimasíðu Landssambands lífeyrissjóða.

Með launum og þóknunum er auk beinna launa átt við hvers konar starfstengd hlunnindi svo sem bifreiða- og húsaleiguhlunnindi. Með störfum í þágu lífeyrissjóðs er m.a. átt við störf sem viðkomandi gegnir í krafti eignaraðildar lífeyrissjóðs að dóttur- eða hlutdeildarfélögum, sem og setu í nefndum og stjórnum sem hann er tilnefndur í af hálfu lífeyrissjóðsins, þótt þóknanir fyrir þau störf séu ekki greiddar af lífeyrissjóðnum sjálfum.

Þá skal í skýringum skal veita upplýsingar um þóknun til endurskoðanda eða endurskoðunarfélags, sem annast ytri endurskoðun lífeyrissjóðsins, sundurliðað í þóknun fyrir endurskoðun annars vegar og fyrir aðra þjónustu hins vegar.