Fjármálaeftirlitið (FME) hefur síðan um miðjan október sl. rannsakað hvort brotið hafi verið gegn þeim lögum sem stofnunin hefur eftirlit með í starfsemi bankanna þriggja sem komust í greiðsluþrot í byrjun þess mánaðar.

Má nefna að til skoðunar eru viðskipti með verðbréf og markaðssetning- og fjárfestingar peningamarkaðssjóða. FME hafa einnig borist ýmsar ábendingar og eru þær skoðaðar sérstaklega.

Þetta kemur fram á vef FME þar sem birt er tilkynning vegna umræðu um rannsóknir á starfsemi bankanna haustið 2008

Þar kemur fram að utanaðkomandi sérfræðingar hafa að beiðni Fjármálaeftirlitsins skoðað ákveðna þætti er snúa m.a. að innri reglum bankanna og lögum um fjármálafyrirtæki.

Þessi skoðun snýr t.d. að þáttum eins og óeðlilegum fjármagnshreyfingum innan samstæðu eða milli landa, skilmálabreytingum lánasamninga, breytingum á tryggingum og veðum, meðferð afleiðusamninga, viðskiptum með verðbréf og hlutdeildarskírteini verðbréfasjóða og meðferð rekstrarfjármuna.

Fram kemur að upplýsingum vegna þessarar skoðunar hefur verið skilað til Fjármálaeftirlitsins en um er að ræða frumgögn sem telja mörg hundruð blaðsíður.

„Úrvinnsla þessara upplýsinga er hafin með það fyrir augum að sannreyna hvort lög hafi verið brotin,“ segir á vef FME.

„Mikilvægt er að vandað sé til slíkrar rannsóknarvinnu og hún unnin af hlutlægni og þess jafnan gætt að spilla ekki rannsóknarhagsmunum. Í þessu skyni skal áréttuð sú grunnregla réttarríkisins að enginn er sekur þar til sekt er sönnuð.“

Þá kemur fram að Fjármálaeftirlitið mun skipuleggja vinnu sína á þann hátt að rannsóknarvinnunni verði hraðað og bætt við tímabundnum starfsmönnum eða utanaðkomandi sérfræðingum ef þörf er á. Í þeim tilvikum sem niðurstöður benda til refsiverðs verknaðar verður beitt stjórnvaldssektum eða málum vísað til lögreglu. Veittar verða upplýsingar um niðurstöður rannsókna á þann hátt sem lög leyfa og eftir því sem verkinu vindur fram.

Þá er tekið fram að Fjármálaeftirlitið vinni innan ákveðins lagaramma sem takmarkar möguleika þess á að tjá sig mál sem það hefur til skoðunar. Einnig sé mögulegt að opinber umfjöllun um einstök mál á rannsóknarstigi geti spillt rannsóknum eða ónýtt mál fyrir dómi.

„Fjármálaeftirlitið, líkt og aðrar eftirlitsstofnanir, má ekki láta af hendi gögn sem tengjast rannsóknum sem það fæst við, nema heimild sé til staðar í lögum,“ segir á vef FME.