Fóðurblandan hefur ráðið tvo nýja starfsmenn í framkvæmdastjórn félagsins. Daði Hafþórsson hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra framleiðslusviðs og mun vera ábyrgur fyrir fóðurframleiðslu og tæknimálum félagsins. Þá hefur Böðvar Jónsson tekið við stöðu framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Fóðurblöndunnar.

Í tilkynningu frá Fóðurblöndunni segir að Daði hafi víðtæka reynslu á sínu sviði. Síðastliðin sjö ár hafi hann starfað hjá VHE vélaverkstæði sem deildarstjóri ÖHU og gæðamála. Áður starfaði hann sem sérfræðingur í framleiðslustýringum hjá Rio Tinto Alcan frá 2001. Daði lauk BSc. í vörustjórnun frá Tækniháskólanum árið 2001 og hefur einnig lokið námi á vegum RTA í verkefnastjórnun frá George Group Consulting í Dallas.

Síðastliðin fjögur ár hefur Böðvar starfað sem sölustjóri sjónvarps hjá RÚV. Þar áður starfaði hann hjá 365 miðlum, meðal annars sem sölustjóri áskrifta og rannsóknarstjóri. Böðvar er viðskiptafræðingur að mennt frá Háskólanum á Bifröst og hefur lokið PMD stjórnendaprófi frá IESE Business School á Spáni.